Hvítþvegið hús á einni helgi

Sýslumaðurinn lætur ekki að sér hæða heheheheheh LoL
mbl.is Veitingastaður sviptur rekstarleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kallast þetta að axla ábyrgð

Þvílíkt endemis yfirklórs kjaftæði er þetta.
mbl.is Endurgreiddi 370 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einnig slys í Þrengslunum

Jeppi farinn útaf í Þrengslunum mjög hált þar.
mbl.is Hellisheiði lokuð vegna slysa við Hveradali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landráðamenn

Það má vera deginum ljósara að ekki verður lengur unað við að landraáðamenn þessa lands sitji við stjórnvölinn. Já, ég segi landráðamenn því að stjórn Íslands ber ábyrgð á því ástandi sem hér hefur skapast og verður ekki flokkað undir annað en landráð þó af gáleysi sé.  Eins verður morð alltaf morð þó af gáleysi sé, það heitir ekkert annað.

Siðleysi stjórnvalda er algert og formenn stjórnarflokkanna haga sér eins og verstu einræðisherrar.

Nú dugar ekkert málefnanlegt kjaftæði lengur ef þessir menn fara ekki með góðu þá er ekkert annað eftir en að hrekja þá af valdastólum með illu. Þeir hafa engann her á bak við sig eins og einræðisherrar almennt hafa, heldur einvörðungu lögreglu landsins og örfáa sérsveitarmenn úr þeirra röðum. 

Ég vona að þeim beri gæfa til að segja af sér STRAX svo forðast megi blóðug átök og byltingu. 


Nú þegja menn þunnu hljóði

Það hefur verið eftirtektarvert að fylgjast með hvernig pressan fjallar um hið svokallaða Byrgismál síðustu vikurnar og mánuði, eftir að ríkissaksóknari sendi kærurannsóknina aftur heim í hérað á Selfoss. Smá klausu mátti lesa í byrjun október að sýslumannsembættið á Selfossi hefði nú aftur sent málið til saksóknara og nú er einn og hálfur mánuður síðan og ekki heyrist hósti né stuna frá saksóknara. Nú hallar í að ár sé liðið frá því að ákveðið var að rústa starfsemi Byrgisins og lífi þeirra sem að því stóðu í heilan áratug, ásamt öllum þeim sem lagt höfðu starfinu lið í baráttu fyrir útigangsmenn og fíkniefnaneytendur sem enginn vildi sinna.

Ráðamenn þjóðarinnar og almenningur missti vitið og felldi sinn dóm án nokkurra efasemda um sekt eða sakleysi. Eignaupptaka átti sér stað í krafti laga um kyrrsetningu eigna án dóms og laga á sama tíma og hundruðum milljóna var sólundað í málarekstur gegn Baugi án þess að svo mikið sem kálhaus væri kyrrsettur hvað þá fasteignir félagsins.

Össur Skarphéðinsson núverandi ráðherra laut svo lágt að kalla stjórnendur Byrgisins glæpamenn á bloggi sínu á þeim forsendum að læknir hafði fullyrt að 10 stúlkur hefðu verið barnaðar í Byrginu og var ekki annað að skilja á skrifum Össurar en stjórnendur Byrgisins ættu króana alla. Því miður sá ég þessi bloggskrif Össurar of seint til að höfða meiðyrðamál á hendur honum, sem ég komst að þegar ég ræddi við lögmann um að stefna ráðherranum, því þá voru liðnir meira en sex mánuðir frá því að hann birti óþverrann á bloggsíðu sinni.  

Hjálmar Árnason var litlu betri þegar hann lét að því liggja á heimasíðu sinni að Guðmundur Jónsson væri djöfull í mannsmynd. Hann ætti nú manna best að vita betur eftir að hafa att Guðmundi út í að endurreisa Rockville úr rústum og standa síðan að því 4 árum síðar að hrekja Byrgið þaðan og reyna síðan í ofanálag að fá samþykki fyrir því að svæðinu breytt í stríðsmenjasafn.

Þetta kalla ég dómgreindarlausa framkomu.

Ég rek svo augun í það á dögunum á visir.is að Guðmundur hafði kært þjófnað á eigum Byrgisins sem geymdar voru í læstri geymslu á Efri Brú með fullu leyfi Fasteigna ríkissjóðs og Götusmiðjunnar sem nú er þar til húsa og þýfið hefði fundist á Sauðárkróki og í Reykjavík eftir ábendingu hans um hver hefði stolið mununum. En til að kóróna fréttarskömmina skýrir visir.is og síðan frá því að erfitt kunni að reynast að sanna að Byrgið eigi þýfið þó þjófurinn hafi viðurkennt brot sitt, sökum þess að samkvæmt "heimildum visis.is" geti reynst erfitt að finna nóturnar fyrir mununum. Þvílík fréttamennska, ég gæti ekki sýnt nótu fyrir matnum í ísskápnum hjá mér hvað þá nótu fyrir ísskápnum sem hann er í. Samkvæmt þessum dylgjum ætti þjófum að vera í lófa lagi að ræna og rupla að vild í trausti þess að þeir sem þeir stælu frá ættu ekki greiðslukvittun fyrir því og þar með mætti ætla að þjófurinn ætti jafn tilkall til þýfisins og sá sem hann stal því frá.

Það vakti einnig athygli mína að sýslumaðurinn á Selfossi sem daglega kemur sér í blöðin með hvaða smámál sem er þagði þunnu hljóði um það að Guðmundur hefði tilkynnt til lögreglunnar á Selfossi um þjófnaðinn á eigum Byrgisins á Efri BRú. Það vakti reyndar meiri furðu mína að staðarhaldari Götusmiðjunnar skyldi hleypa bláókunnugum fíkniefnaneytanda í læsta geymslu á Efri Brú án þess að kanna sannleiksgildi orða þjófsins.   

Ég vil því að lokum segja, að hafi menn í huga að leggja það fyrir sig að hjálpa bágstöddu götufólki og fíklum þá skulu menn vera undir það búnir að fá slíka útreið sem þakklætisvott fyrir unnin störf.


Athyglissjúkur sýslumaður

Það er ekki laust við að mann sé farið að gruna að sýslumaður Selfyssinga sé ekki eins og fólk er flest. Nú heldur hann fjölmiðlum við efnið að fjalla um sig og sitt umdæmi með því að ákæra fólk fyrir pylsubréfadreifingu, reykspól og annan ófögnuð. Ekki það að ég sé að mæla með því að fólk gangi óþrifalega um bæinn sinn, en spurningin er hvort nauðsynlegt sé að ákæra hvern þann mann sem hagar sér ósæmilega.

Einhvernvegin hefur læðst að mér upp á síðkastið að réttarkerfið á Íslandi sé að sprungið vegna ódæðisverka ógæfufólks sem á við áfengis-, geð- og fíkniefnavandamál að stríða. Þetta fólk er uppfullt af ranghugmyndum og getur engan veginn lengur greint rétt frá röngu. Sýslumaður Selfyssinga gekk nú svo fram af mér fyrir nokkru, þegar hann notfærði sér fréttamiðla landsins til að auglýsa eftir kærendum á hendur Guðmundi í Byrginu og síðan aftur nú fyrir nokkrum dögum, þegar hann auglýsti eftir að fólk kærði til lögreglunnar á Selfossi hvern þann sem sæist reykspóla í umdæminu. Hann lét síðan fylgja með að ef þeir sem kærðir væru neituðu að gefa upp hver hefði ekið bifreiðinni þegar reykspólun fór fram, fengju 20 þúsund króna sekt.  

Ljóst er að í nógu er að snúast hjá sýslumanni Selfyssinga við að greiða úr öllum kærubunkanum og forgangsraða rannsóknum mála og ekki síst að greina réttar kærur frá röngum.


Er mér þetta gefið?

Veit satt best að segja ekki hvernig stóð á því að ég leiddist út í það að stofna þessa síðu. Ekki það að mér liggi aldrei neitt á hjarta, heldur velti ég því fyrir mér í þessum skrifuðu orðum hvort það eigi nokkuð erindi til annarra. Það mun framtíðin leiða í ljós.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband