Landráðamenn

Það má vera deginum ljósara að ekki verður lengur unað við að landraáðamenn þessa lands sitji við stjórnvölinn. Já, ég segi landráðamenn því að stjórn Íslands ber ábyrgð á því ástandi sem hér hefur skapast og verður ekki flokkað undir annað en landráð þó af gáleysi sé.  Eins verður morð alltaf morð þó af gáleysi sé, það heitir ekkert annað.

Siðleysi stjórnvalda er algert og formenn stjórnarflokkanna haga sér eins og verstu einræðisherrar.

Nú dugar ekkert málefnanlegt kjaftæði lengur ef þessir menn fara ekki með góðu þá er ekkert annað eftir en að hrekja þá af valdastólum með illu. Þeir hafa engann her á bak við sig eins og einræðisherrar almennt hafa, heldur einvörðungu lögreglu landsins og örfáa sérsveitarmenn úr þeirra röðum. 

Ég vona að þeim beri gæfa til að segja af sér STRAX svo forðast megi blóðug átök og byltingu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband